Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
Óskar Hrafn: Þú hefur margt fyrir þér í því
Stefán Árni: Unun að fá að deila velli með honum
Hemmi ósáttur: Brandari hvað Finnur og Ástbjörn komast upp með í 90 mínútur
Bryndís Rut hreinskilin eftir stórt tap: „Markmiðið er að halda okkur í deildinni“
Keflavík rúllaði yfir Tindastól – „Geggjað að taka svona sigur“
Hetjan Hallgrímur æfði ekkert í vikunni: Ákvað að svara þegar ég skoraði
Haddi: Róar taugarnar hjá mér
Siggi Höskulds lýsir vonbrigðunum: Nei það er ekki hægt
Gunnar Heiðar ósáttur eftir sigur: Er ekkert eðlilega óánægður með þetta
Nenad: Ég ætla ekki að tjá mig
Jóhann Birnir ósáttur með rauða spjaldið - „Fannst hann bara sækja brotið"
Venni: Ég var aldrei í rónni
Elfar Árni: Spennandi að sjá hvort einhver nýr verði á bekknum í næsta leik
Modoumatarr frá Stokkhólmi: Rólegt líf á Húsavík.
Maggi svekktur: Þeir eru með hörkuhóp
Davíð Smári: Svo sem hægt að kenna dómaranum um
Damir: Gekk betur þegar við föttuðum það
„Smá högg í vetur þegar ég var ein af þeim elstu 22 ára"
„Sigurmark í lokin gerir þetta ennþá sætara“
Mist lagði upp sigurmarkið - „Þetta var nákvæm hreinsun“
   lau 27. ágúst 2022 19:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mist: Það gerir þetta að vissu leyti extra sætt
Mist í leiknum í dag.
Mist í leiknum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Hún er bara dásamleg, ég var hér síðast í bikarúrslitaleik 2012, síðasti bikartitilinn sem ég vann var fyrsta tímabilið í Val þannig að er ótrúlega gott að vera loksins komin með annan eftir langa fjarveru frá Hlíðarenda," sagði bikarmeistarinn Mist Edvardsdóttir eftir sigur á Breiðabliki í dag.

Valur var að vinna bikarinn í fyrsta sinn í ellefu ár (fyrsta ár Mistar hjá Vals) og var þetta fyrsti bikarúrslitaleikurinn síðan 2012.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  2 Valur

„Þetta er alltaf sama tilfinningin, þessi gleðitilfinning að vinna titilinn. En þessi leikur er kannski extra sætur því við lendum 1-0 undir. Það er þetta klassíska, að sýna karakterinn að koma til baka. Það gerir þetta að vissu leyti extra sætt."

„Við komum inn og við settumst bara niður, vorum allar pollrólegar og töluðum að halda kúlinu. Tilfinningin hjá okkur var þannig að við værum ennþá með þennan leik, þyrftum bara að reka smiðshöggið."


Valur er í toppsæti deildarinnar, á leið í 2. umferð í forkeppni Meistaradeildarinnar og nú bikarmeistari.

„Það er fáránlega gaman, það er líka gaman að vera í félagi sem setur metnað í allar greinar - karfan og handboltinn að gera vel líka. Núna erum við komnar með annan af tveimur stóru titlunum í sumar og ætlum klárlega að sækja hinn líka."

Var eitthvað rætt um að í ár væri komið að því að landa þessum titli?

„Við höfum alltaf verið að detta út á súran hátt síðustu ár, Valur fór í gegnum smá lægð 2014-15 og svo höfum við verið að byggja upp. Við höfum alltaf ætlað að sækja bikartitilinn líka, okkur hefur fundist við eiga meira inni í þessari keppni og það var klárlega markmiðið fyrir tímabilið að sækja tvennuna," sagði Mist.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst í fréttinni
Slapp
banner
banner