Helena Ólafsdóttir, þjálfari Vals í Pepsi-deild kvenna, var langt frá því að vera sátt með dómgæsluna í 2-0 tapi gegn Stjörnunni í dag.
,,Nei að mörgu leiti ekki. Mér fannst liðið vera að berjast og við sköpuðum okkur færi eins og undanfarið, við kláruðum hinsvegar ekki leikinn. Mér fannst ýmiss vafaatriði sem ég var mjög ósátt við, við áttum að fá víti í fyrri hálfleik og svo er mér sagt að hún hafi lagt fyrir sig boltann með hönd í öðru markinu," sagði Helena.
,,Þetta þarf að lagast, þetta er ekki í fyrsta sinn sem þetta gerist. Ég hef ekki verið ánægð með dómgæsluna, þeir geta tekið sig á og við líka, en ég er alls ekki sátt með dómgæsluna."
,,Næsti fókus er næsti leikur og þegar maður lendir í svona áföllum þar sem við erum ekki að standa okkur á móti þeim liðum sem við áttum að keppa við þá þurfum við að passa að halda andlegri heilsu í lagi og það er mikið eftir af sumrinu, það er enn bara maí," sagði hún ennfremur.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.






















