Viðtal við Gylfa um skiptin í Tottenham
Gylfi Þór Sigurðsson var staðfestur sem leikmaður Tottenham í dag. Hann er staddur hér á landi en fer út á sunnudaginn. Hann ræddi við Fótbolta.net í Laugardalnum um kvöldmatarleytið.
„Það var mikill áhugi frá þeim," segir Gylfi en mikið fjölmiðlafár hefur verið ríkjandi hér á landi í aðdraganda félagaskiptanna.
„Ég var sjálfur orðinn þreyttur á þessum fréttum í fjölmiðlum á Íslandi. Eftirvæntingin eftir því að klára dæmið hefur verið mjög mikil. Ég tók mér bara minn tíma sem ég þurfti í þetta og vonandi er þetta rétt ákvörðun."
Hann segir að stór hluti af því sem stóð í fjölmiðlum hafi verið úr lausu lofti gripið.
„Mjög mikið af þessu var alveg út í hött. Ég var í Bandaríkjunum þegar það kom ein frétt um að ég hefði keypt mér íbúð út í Liverpool. Svona er þetta. Það vilja allir vera fyrstir með fréttirnar."
Gylfi er keyptur frá Hoffenheim en sér ekki eftir dvölinni þar. „Ég sé ekki eftir neinu. Ég þroskaðist mikið þarna og bætti mig sem leikmaður."
Í sjónvarpinu hér að ofan má sjá viðtalið við Gylfa í heild sinni en þar tjáir hann sig meðal annars Andre Villas-Boas og hvernig hann ætlar að eyða síðustu dögunum hér á landi áður en hann heldur út.





















