Braga 1 - 1 Betis
1-0 Florian Grillitsch ('5 )
1-1 Cucho Hernandez ('61 , víti)
1-0 Florian Grillitsch ('5 )
1-1 Cucho Hernandez ('61 , víti)
Real Betis heimsótti Braga til Portúgal í fyrri leik liðanna í kvöld í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
Gengið hefur verið arfaslakt hjá Betis að undanförnu en liðið er án sigurs í síðustu sex leikjum í spænsku deildinni. Braga hefur haldið sjö sinnum hrienu í Evrópudeildinni á tímabilinu.
Braga náði forystunni strax á fimmtu mínútu þegar Florian Grillitsch skoraði eftir hornspyrnu.
Heimamenn voru meira með boltann í seinni hálfleik en Betis fékk vítaspyrnu eftir klukkutíma leik þegar brotið var á Abde Ezzalzouli og Cucho Hernandez skoraði og þar við sat.
Seinni leikurinn fer fram þann 16. apríl en sigurvegarinn mætir annað hvort Celta Vigo eða Freiburg í undanúrslitum.


