Danska félagið Viborg er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að kaupa Ísak Andra Sigurgeirsson frá sænska félaginu Norrköping.
Ísak fer á láni út tímabilið og verður svo keyptur í kjölfarið. Hann á eftir að gangast undir læknisskoðun hjá Viborg, hann mun gera það í kvöld.
Viborg er sem stendur í 7. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar og á góðan möguleika á því að enda í efri hluta deildarinnar.

Ísak Andri er 22 ára sóknarmaður sem fór til Norrköping frá Stjörnunni sumarið 2023 eftir að hafa verið einn besti leikmaður Bestu deildarinnar.
Hann byrjaði síðasta tímabil frábærlega en dalaði svo þegar leið á tímabilið. Norrköping féll úr úrvalsdeildinni og verður í næstefstu deild á komandi tímabili.
Athugasemdir