Heimild: TV2
Norski miðillinn TV2 greinir frá því að hollenska félagið Go Ahead Eagles hafi náð samkomulagi við Sandefjord um kaup á íslenska framherjanum Stefáni Ingi Sigurðarsyni.
Sagt er að Go Ahead greiði 34 milljónir norskra króna fyrir að fá Stefán Inga í sínar raðir. Það eru um 430 milljónir íslenskra króna og um þrjár milljónir evra.
Stefán Ingi, sem er 25 ára framherji, átti frábært tímabil í norsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili, skoraði 15 deildarmörk og vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína. Hann hefur einnig verið orðaður við norska stórliðið Bodö/Glimt.

Stefán verður annar Íslendingurinn sem Go Ahead fær í þessum glugga því Alfons Sampsted kom til félagsins á dögunum frá Birmingham.
Bæði Stefán Ingi og Alfons eru uppaldir hjá Breiðabliki. Go Ahead situr í 14. sæti hollensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir