Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
   sun 01. febrúar 2026 19:28
Ívan Guðjón Baldursson
Chelsea að endurkalla Sarr frá Strasbourg
Mynd: EPA
Chelsea hefur verið í leit að nýjum miðverði í janúarglugganum en mistókst að kaupa Jérémy Jacquet frá Rennes þar sem franska félagið neitar að selja hann fyrir næsta sumar.

Félagið ætlar því að endurkalla Mamadou Sarr úr láni frá Strasbourg í Frakklandi og senda Anselmino þangað í staðinn.

Chelsea endurkallaði Anselmino úr láni frá Borussia Dortmund fyrr í janúar og var búist við að hann yrði notaður, en hann var ekki valinn í hóp í þremur leikjum undir stjórn Liam Rosenior. Félagið ætlar núna að nota hann til að fá Sarr aftur til baka, Anselmino verður því sendur til systurfélagsins Strasbourg til að fylla í skarðið fyrir Sarr.

Sarr er tvítugur miðvörður sem Chelsea keypti úr röðum Strasbourg í janúar í fyrra. Hann kom aðeins við sögu í einum leik með enska félaginu áður en hann var sendur aftur til Frakklands á láni síðasta sumar. Hann er mikilvægur hlekkur í liði Strasbourg og hefur Rosenior miklar mætur á honum eftir að hafa þjálfað hann.

Chelsea borgaði 12 milljónir punda til að kaupa Sarr úr röðum Strasbourg í fyrra, eftir að hafa notað 15 milljónir til að kaupa Anselmino frá Boca Juniors sumarið 2024.

Sarr var lykilmaður í yngri landsliðum Frakklands en kaus að spila fyrir A-landslið Senegal og varð Afríkumeistari í janúar.

   01.02.2026 10:00
Chelsea sendir enn einn leikmanninn til Strasbourg

Athugasemdir
banner
banner