Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
   mán 02. febrúar 2026 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fulham nær samkomulagi við PSV
Mynd: EPA
Fulham er búið að ná samkomulagi við PSV Eindhoven um kaupverð fyrir bandaríska framherjann Ricardo Pepi.

PSV er þó ekki búið að gefa grænt ljós á félagaskiptin útaf því að félagið þarf að finna nýjan framherja til að fylla í skarðið.

PSV er búið að samþykkja 37 milljón evra tilboð frá Fulham og var Pepi himinlifandi með samningstilboðið frá London.

Pepi er 22 ára gamall og hefur vakið mikla athygli á sér með framgöngu sinni í hollenska boltanum og með bandaríska landsliðinu að undanförnu.

Framherjinn er handleggsbrotinn og verður frá keppni næstu vikurnar en Fulham vill samt festa kaup á honum sem fyrst. Pepi er spenntur fyrir ensku úrvalsdeildinni en er ekki að flýta sér í burtu frá PSV. Ef hann skiptir ekki um félag í dag þá gerir hann það næsta sumar.

   25.01.2026 07:30
Fulham með nýtt tilboð í Pepi

Athugasemdir
banner
banner
banner