Vill komast í enska landsliðshópinn fyrir HM
Fótboltafréttamaðurinn vinsæli Fabrizio Romano er búinn að setja „here we go!" stimpilinn á önnur félagaskipti undir lok janúargluggans.
Wolves, botnlið ensku úrvalsdeildarinnar, er að næla í miðjumanninn Angel Gomes á lánssamningi frá Marseille.
Gomes var mikið í umræðunni þegar hann gerði frábæra hluti með Lille í frönsku deildinni en átti svo erfitt uppdráttar á sinni síðustu leiktíð með félaginu. Hann var sérstaklega orðaður við endurkomu í uppeldisfélagið sitt Manchester United, en önnur félög sýndu einnig áhuga.
21.11.2024 11:00
Man Utd vill fá Gomes til baka - Amorim sagður aðdáandi
Hann var lykilmaður í liði Lille en þegar kom í ljós að hann ætlaði ekki að gera nýjan samning við félagið var hann settur í frystikistuna.
Marseille tryggði sér krafta Gomes á frjálsri sölu síðasta sumar en leikmanninum mistókst að festa sig í sessi í byrjunarliðinu þrátt fyrir ýmis tækifæri.
Gomes fékk lítinn sem engan spiltíma í desember og janúar og vill því ólmur skipta um félag. Hann er spenntur fyrir að ganga í raðir Wolves þrátt fyrir að liðið sé í botnbaráttu, þar sem markmið Gomes er að sanna sig í úrvalsdeildinni í tilraun til að vinna sér inn sæti í landsliðshópi Englands fyrir HM komandi sumar.
Gomes er 25 ára gamall og var algjör lykilmaður upp yngri landslið Englands, en hefur aðeins tekið þátt í fjórum keppnisleikjum með A-landsliðinu.
Úlfarnir borga 1 milljón evra til að fá Gomes á láni og getur botnliðið fest kaup á honum fyrir 7 milljónir til viðbótar.
28.01.2026 08:00
Úlfarnir reyna við Angel Gomes
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 24 | 16 | 5 | 3 | 46 | 17 | +29 | 53 |
| 2 | Man City | 24 | 14 | 5 | 5 | 49 | 23 | +26 | 47 |
| 3 | Aston Villa | 24 | 14 | 4 | 6 | 35 | 26 | +9 | 46 |
| 4 | Man Utd | 24 | 11 | 8 | 5 | 44 | 36 | +8 | 41 |
| 5 | Chelsea | 24 | 11 | 7 | 6 | 42 | 27 | +15 | 40 |
| 6 | Liverpool | 24 | 11 | 6 | 7 | 39 | 33 | +6 | 39 |
| 7 | Brentford | 24 | 11 | 3 | 10 | 36 | 32 | +4 | 36 |
| 8 | Fulham | 24 | 10 | 4 | 10 | 34 | 35 | -1 | 34 |
| 9 | Everton | 24 | 9 | 7 | 8 | 26 | 27 | -1 | 34 |
| 10 | Newcastle | 24 | 9 | 6 | 9 | 33 | 33 | 0 | 33 |
| 11 | Sunderland | 23 | 8 | 9 | 6 | 24 | 26 | -2 | 33 |
| 12 | Bournemouth | 24 | 8 | 9 | 7 | 40 | 43 | -3 | 33 |
| 13 | Brighton | 24 | 7 | 10 | 7 | 34 | 32 | +2 | 31 |
| 14 | Tottenham | 24 | 7 | 8 | 9 | 35 | 33 | +2 | 29 |
| 15 | Crystal Palace | 24 | 7 | 8 | 9 | 25 | 29 | -4 | 29 |
| 16 | Leeds | 24 | 6 | 8 | 10 | 31 | 42 | -11 | 26 |
| 17 | Nott. Forest | 24 | 7 | 5 | 12 | 24 | 35 | -11 | 26 |
| 18 | West Ham | 24 | 5 | 5 | 14 | 29 | 48 | -19 | 20 |
| 19 | Burnley | 23 | 3 | 6 | 14 | 25 | 44 | -19 | 15 |
| 20 | Wolves | 24 | 1 | 5 | 18 | 15 | 45 | -30 | 8 |
Athugasemdir






