Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
   sun 01. febrúar 2026 21:57
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Juventus fór létt með Parma
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Parma 1 - 4 Juventus
0-1 Bremer ('15 )
0-2 Weston McKennie ('37 )
1-2 Andrea Cambiaso ('51 , sjálfsmark)
1-3 Bremer ('54 )
1-4 Jonathan David ('64 )

Juventus heimsótti Parma í lokaleik kvöldsins í efstu deild ítalska boltans og fór létt með andstæðinga sína.

Miðvörðurinn Bremer tók forystuna með skalla eftir hornspyrnu áður en Weston McKennie skoraði eftir frábæran undirbúning frá Pierre Kalulu.

Andrea Cambiaso skoraði klaufalegt sjálfsmark í upphafi síðari hálfleiks en það kom ekki að sök því Bremer bætti öðru marki við, í þetta skiptið eftir aukaspyrnu.

Jonathan David innsiglaði sigur Juve þegar hann fylgdi marktilraun Francisco Conceicao eftir með marki á 64. mínútu. Lokatölur 1-4.

Juventus er í fjórða sæti í Serie A með 45 stig eftir 23 umferðir, tíu stigum á eftir toppliði Inter.

Parma er í fallbaráttu með 23 stig.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 23 18 1 4 52 19 +33 55
2 Milan 22 13 8 1 35 17 +18 47
3 Napoli 23 14 4 5 33 21 +12 46
4 Juventus 23 13 6 4 39 18 +21 45
5 Roma 22 14 1 7 27 13 +14 43
6 Como 23 11 8 4 37 16 +21 41
7 Atalanta 23 9 9 5 30 20 +10 36
8 Lazio 23 8 8 7 24 21 +3 32
9 Bologna 22 8 6 8 32 27 +5 30
10 Sassuolo 23 8 5 10 27 29 -2 29
11 Udinese 22 8 5 9 25 34 -9 29
12 Cagliari 23 7 7 9 28 31 -3 28
13 Torino 23 7 5 11 22 40 -18 26
14 Genoa 23 5 8 10 27 34 -7 23
15 Cremonese 23 5 8 10 20 31 -11 23
16 Parma 23 5 8 10 15 30 -15 23
17 Lecce 23 4 6 13 13 30 -17 18
18 Fiorentina 23 3 8 12 25 36 -11 17
19 Pisa 23 1 11 11 19 40 -21 14
20 Verona 23 2 8 13 18 41 -23 14
Athugasemdir
banner
banner