Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
   sun 01. febrúar 2026 13:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarliðin í enska: Cunha kemur inn fyrir Dorgu
Mynd: EPA
Mason Mount er ekki í hópnum hjá United
Mason Mount er ekki í hópnum hjá United
Mynd: EPA
Þrír leikir eru á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni klukkan 14 í dag. Man Utd mætir Fulham eftir frábæra sigra gegn Man City og Arsenal undanfarið.

Michael Carrick gerir eina breytingu á liðinu frá sigri gegn Arsenal. Patrick Dorgu er meiddur og Matheus Cunha kemur inn í staðinn. Mason Mount er ekki í hópnum en Shea Lacey og Joshua Zirkzee koma inn og fá sér sæti á bekknum.

Það er ein breyting á liði Fulham frá 2-1 sigri gegn Brighton. Samuel Chukwueze kemur inn fyrir Kevin.

Aston Villa mætir Brentford en Unai Emery gerir sjö breytingar á liði Villa sem vann RB Salzburg í Evrópudeildinni í vikunni, aðeins Martinez, Bogarde, Buendia og Sancho halda sæti sínu. Tammy Abraham gekk til liðs við félagið frá Besiktas á dögunum en hann byrjar í sínum fyrsta leik.

Það eru þrjár breytingar hjá Brentford frá 2-0 tapi gegn Forest. Van den Berg, Henderson og Ouattara koma inn fyrir Collins, Yarmolyuk og Mikkel Damsgaard.

Eins og búast mátti við er Jean-Philippe Mateta ekki með Crystal Palace gegn Nottingham Forest. Ismaila Sarr er í fremstu víglínu. Sean Dyche heldur sig við sama lið og vann Brentford 2-0.

Man Utd: Lammens; Dalot, Maguire, Martinez, Shaw; Mainoo, Casemiro; Amad, Fernandes, Cunha; Mbeumo.
Varamenn: Bayindir, Heaven, Malacia, Mazraoui, Yoro, Ugarte, Lacey, Sesko, Zirkzee.

Fulham: Leno; Castagne, Andersen, Cuenca, Robinson; Berge, Iwobi; Wilson, Smith Rowe, Chukwueze; Jimenez.
Varamenn: Lecomte, Tete, Bassey, Sessegnon, Reed, Cairney, King, Kevin, Kusi-Asare.


Aston Villa: Martinez, Cash, Konsa, Pau, Maatsen, Bogarde, Luiz, Sancho, Buendia, Rogers, Abraham
Varamenn: Bizot, Lindelof, Digne, Mings, Barkley, Hemmings, Onana, Bailey, Elliott

Brentford: Kelleher, Henry, Ajer, Van den Berg, Kayode, Jensen, Henderson, Janelt, Schade, Thiago, Ouattara
Varamenn: Valdimarsson, Hickey, Pinnock, Yarmoliuk, Collins, Lewis-Potter, Damsgaard, Donovan, Bentt
Athugasemdir
banner
banner