Barcelona undirbýr tilboð í Lisandro Martinez - Curtis Jones orðaður við Inter - Camavinga orðaður við Arsenal og Liverpool
banner
   sun 01. febrúar 2026 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Grundfirðingar léttir - Vilja fá 18 þúsund frá Eyjamönnum
Aleksandar Linta
Aleksandar Linta
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aleksandar Linta var á dögunum ráðinn þjálfari ÍBV í Bestu deildinni, en hann er að snúa aftur til landsins eftir að farið hratt upp metorðalistann erlendis.

Linta er fimmtugur og spilaði meira og minna á Íslandi frá 1997 til 2013.

Hann spilaði fyrst með ÍA árið 1997 en lék einnig með Skallagrími, Víkings Ólafsvík, KA, Þór og Grundarfirði þar sem hann hóf þjálfaraferil sinn árið 2012.

Eftir það þjálfaði hann U19 ára landslið Serbíu og hjá yngri liðum Rauðu stjörnunnar ásamt því að hafa þjálfað FK Vozdovac og Olimpija Ljubljana og fleiri liðum.

Grundfirðingar slá á létta strengi á Facebook um að þeir hafi náð samkomulagi við ÍBV um Linta, en munu ekki samgleðjast þeim fyrr en þeir hafa greitt eftirstöðvarnar af 18 þúsund króna greiðslunni sem þeim var lofað.

Þetta er þó allt gert í góðu gríni en tilkynninguna frá Grundfirðingum má lesa hér fyrir neðan.

„Grundarfjörður og ÍBV hafa komist að samkomulagi um þjálfarann Aleksandar Linta. Eyjamenn höfðu verið lengi í þjálfaraleit sem endaði með þessari farsælu niðurstöðu. Við munum þó ekki samgleðjast ÍBVmönnum fyrr en síðasti hlutinn af 18 þúsund króna greiðslunni hefur verið inntur af hendi. En Linta óskum við alls hins besta enda farsælustu og skemmtilegustu minningar liðsins tengdar honum.
Áfram Linta.... og jú áfram ÍBV,"
segir í þessari skemmtilegu tilkynningu Grundfirðinga.
Athugasemdir
banner
banner