AS Roma er að krækja í spænska kantmann sem kemur til félagsins á láni frá Þýskalandsmeisturum FC Bayern með kaupmöguleika.
Sá heitir Bryan Zaragoza og er 24 ára gamall. Hann lék á láni hjá Celta Vigo á fyrri hluta tímabils og kom að 6 mörkum í 26 leikjum með liðinu.
Celta samþykkti að enda lánssamninginn fyrr gegn greiðslu og reynir kantmaðurinn nú fyrir sér á Ítalíu.
Zaragoza er afar lágvaxinn leikmaður sem Bayern keypti í sínar raðir fyrir þremur árum síðan. Hann kostaði um 20 milljónir evra en hefur aðeins komið við sögu í sjö keppnisleikjum með þýska stórveldinu.
Hann hefur verið á láni hjá Osasuna og Celta síðustu átján mánuði en hann steig sín fyrstu skref hjá Granada, eftir að hafa alist upp í Málaga.
Hann á þrjá A-landsleiki að baki fyrir Spán en var aldrei partur af unglingalandsliðunum.
???????????? Bryan Zaragoza, just arrived in Roma to join AS Roma on loan with buy clause from Bayern!@gabspalletta ???? pic.twitter.com/T5lJ6zmGnZ
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) February 2, 2026
Athugasemdir



