Barcelona undirbýr tilboð í Lisandro Martinez - Curtis Jones orðaður við Inter - Camavinga orðaður við Arsenal og Liverpool
banner
   lau 31. janúar 2026 22:08
Brynjar Ingi Erluson
England: Ekitike og Wirtz frábærir í sigri Liverpool - Tilfinningaþrungin stund fyrir Konate
Hugo Ekitike og Florian Wirtz voru frábærir gegn Newcastle
Hugo Ekitike og Florian Wirtz voru frábærir gegn Newcastle
Mynd: EPA
Wirtz hefur komið að níu mörkum í síðustu tíu leikjum
Wirtz hefur komið að níu mörkum í síðustu tíu leikjum
Mynd: EPA
Liverpool 4 - 1 Newcastle
0-1 Anthony Gordon ('36 )
1-1 Hugo Ekitike ('41 )
2-1 Hugo Ekitike ('43 )
3-1 Florian Wirtz ('67 )
4-1 Ibrahima Konate ('90 )

Englandsmeistarar Liverpool unnu frábæran 4-1 sigur á Newcastle United í 24. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Anfield í kvöld og komu sér upp í fimmta sætið.

Newcastle var að ógna deildarmeisturunum úr hornspyrnum í byrjun leiks en voru að fara illa með færin. Harvey Barnes átti aukaspyrnu sem hafnaði í tréverkinu á meðan Hugo Ekitike var helsta ógn Liverpool-manna.

Það kom ekki beint á óvart þegar Anthony Gordon kom Newcastle í forystu á 36. mínútu með laglegu skoti en þetta var hans fyrsta deildarmark úr opnum leik í síðustu 33 leikjum.

Liverpool svaraði þeim um hæl með tveimur mörkum frá Ekitike, sem hefur verið magnaður með liðinu á tímabilinu. Hann skoraði fyrra mark sitt á 41. mínútu er Florian Wirtz lagði boltann til hliðar á Ekitike og seinna markið kom eftir frábært hlaup Frakkans eftir sendingu frá Milos Kerkez.

Fimmtánda mark Ekitike í öllum keppnum og hans tíunda í deildinni.

Frakkinn fékk dauðafæri til að fullkomna þrennuna í upphafi síðari hálfleiks er hann komst einn á einn gegn Nick Pope en setti boltann framhjá markinu.

Florian Wirtz, sem var keyptur til Liverpool fyrir metfé frá Bayer Leverkusen á síðasta ári, var hægur í gang með þeim ensku, en er svo sannarlega farinn að sýna sitt rétta andlit. Hann skoraði þriðja mark liðsins eftir gott samspil með Mohamed Salah með smekklegri afgreiðslu upp við stöng.

Wirtz hefur nú komið að níu mörkum í síðustu tíu leikjum sínum með Liverpool.

Meiðsli hafa herjað á hóp Liverpool á þessu tímabili og þegar lítið var eftir þurfti Ekitike að fara af velli og kom Curtis Jones inn á í hans stað. Hausverkur fyrir Arne Slot sem gæti verið án framherja í næstu leikjum en það ætti að skýrast betur eftir helgi.

Ibrahima Konate var ekki með Liverpool í síðustu leikjum eftir að hafa misst föður sinn. Hann mætti aftur í byrjunarliðið í kvöld og var skrifað í skýin að hann myndi skora.

Hann var nálægt því snemma í uppbótartímanum en þá fór boltinn af Nick Woltemade og út af, en hann fékk aftur tækifæri til að skora nokkrum mínútum síðar og nýtti það.

Þetta var ekki fallegasta mark í heimi en tilfinningaþrungið var það. Nick Pope var í vandræðum með hornspyrnu Dominik Szoboszlai, boltinn datt fyrir Konate sem náði að pota í boltann sem lak inn fyrir línuna.

Konate táraðist er hann fagnaði markinu ásamt öllum liðsfélögunum, meira að segja markverðinum Alisson sem hljóp allan völlinn til þess að fagna með honum, enda enginn sem skilur betur það sem Konate er að ganga í gegnum. Alisson skoraði sjálfur mikilvægt mark með Liverpool gegn WBA í maí árið 2021 sem færði þeim Meistaradeildarsæti aðeins nokkrum mánuðum eftir að hafa misst föður sinn.

Fallegur endir í fagmannlegri frammistöðu Liverpool sem er í 5. sæti með 39 stig en Newcastle United í 10. sæti með 33 stig og án sigurs í síðustu þremur deildarleikjum.
Athugasemdir
banner
banner