Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
banner
   mán 02. febrúar 2026 17:32
Brynjar Ingi Erluson
Palace leggur fram 20 milljóna punda tilboð í McNeil
Mynd: EPA
Crystal Palace hefur lagt fram 20 milljóna punda tilboð í enska vængmanninn Dwight McNeil sem er á mála hjá Everton.

Crystal Palace hefur verið að skoða möguleikann á að fá enska vængmanninn en Nottingham Forest hefur einnig sýnt því áhuga á að fá hann.

McNeil, sem er 26 ára gamall, vann áður með Sean Dyche, stjóra Forest, hjá bæði Burnley og Everton.

Sky Sports taldi það ólíklegt að McNeil fengi að fara frá Everton svona seint í glugganum, en Palace ætlar að láta reyna á það með 20 milljóna punda tilboði.

Everton hefur ekki svarað tilboði Palace en það er naumur tími til stefnu enda lokar glugginn klukkan 19:00. Palace gæti fengið aukafrest til að ganga frá skiptunum ef það nær samkomulagi við Everton.
Athugasemdir
banner
banner