Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Saint-Maximin yfirgefur Mexíkó útaf kynþáttafordómum
Mynd: EPA
Kantmaðurinn knái Allan Saint-Maximin er án félags eftir að hafa rift samningi sínum við Club América í Mexíkó.

Saint-Maximin, sem gerði garðinn frægan með Nice og Newcastle, fékk samningi sínum rift eftir að börn hans urðu fyrir kynþáttafordómum.

„Húðliturinn er ekki vandamálið heldur er það hvernig hugsanirnar þínar eru á litinn," skrifaði Saint-Maximin í færslu á Instagram. „Þegar það er ráðist á mig með fordómum þá er það ekkert mál, ég er með breitt bak. En ég tek það ekki í mál að það sé ráðist að börnunum mínum.

„Það er forgangsmál að verja börnin mín og ég mun berjast til að tryggja að þau séu virt og elskuð sama hvaðan þau koma eða hvernig húðin þeirra er á litin. Hatur og fordómar eiga sér engan stað í okkar samfélagi."


Saint-Maximin kom að 5 mörkum í 15 leikjum með Club América frá komu sinni til félagsins síðasta sumar. Mexíkóska stórveldið borgaði 10 milljónir evra til að kaupa hann úr röðum Al-Ahli í Sádi-Arabíu.

Saint-Maximin er 28 ára gamall Frakki sem lék fyrir yngri landslið Frakklands en tók aldrei stökkið upp í A-landsliðið. Hann er þekktur fyrir að vera snöggur og afar leikinn með boltann.
Athugasemdir
banner
banner