Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 10:55
Elvar Geir Magnússon
Arsenal vinnur í því að fá táning frá Hearts
James Wilson er orðaður við Arsenal.
James Wilson er orðaður við Arsenal.
Mynd: Samsett/Hearts
Arsenal vinnur að því að fá táninginn James Wilson frá skoska félaginu Hearts.

Þessi 18 ára framherji hefur þegar leikið inn fyrsta A-landsleik fyrir Skotland og er með átta mörk í 21 byrjunarliðsleik fyrir Edinborgarliðið. Hann hefur hinsvegar ekki fengið mikinn spiltíma að undanförnu.

Fabrizio Romano segir að Arsenal vilji fá Wilson lánaðan. Þannig geti félagið fylgst náið með honum áður en ákvörðun verði tekin um mögulegt kauptilboð.

Hearts er með sex stiga forystu á toppi skosku úrvalsdeildarinnar en Tómas Bent Magnússon er meðal leikmanna liðsins.

Wilson er ekki eini ungi skotinn sem Arsenal hefur áhuga á. Evan Mooney, 18 ára miðjumaður St Mirren, hefur einnig verið orðaður við topplið ensku úrvalsdeildarinnar.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 24 16 5 3 46 17 +29 53
2 Man City 24 14 5 5 49 23 +26 47
3 Aston Villa 24 14 4 6 35 26 +9 46
4 Man Utd 24 11 8 5 44 36 +8 41
5 Chelsea 24 11 7 6 42 27 +15 40
6 Liverpool 24 11 6 7 39 33 +6 39
7 Brentford 24 11 3 10 36 32 +4 36
8 Fulham 24 10 4 10 34 35 -1 34
9 Everton 24 9 7 8 26 27 -1 34
10 Newcastle 24 9 6 9 33 33 0 33
11 Sunderland 23 8 9 6 24 26 -2 33
12 Bournemouth 24 8 9 7 40 43 -3 33
13 Brighton 24 7 10 7 34 32 +2 31
14 Tottenham 24 7 8 9 35 33 +2 29
15 Crystal Palace 24 7 8 9 25 29 -4 29
16 Leeds 24 6 8 10 31 42 -11 26
17 Nott. Forest 24 7 5 12 24 35 -11 26
18 West Ham 24 5 5 14 29 48 -19 20
19 Burnley 23 3 6 14 25 44 -19 15
20 Wolves 24 1 5 18 15 45 -30 8
Athugasemdir
banner
banner