Barcelona undirbýr tilboð í Lisandro Martinez - Curtis Jones orðaður við Inter - Camavinga orðaður við Arsenal og Liverpool
   sun 01. febrúar 2026 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Mateta óþolinmóður - Ekki búinn að fá grænt ljós frá Palace
Mynd: EPA
Sóknarmaðurinn Jean-Philippe Mateta er orðinn óþolinmóður og þreyttur á að bíða eftir grænu ljósi frá Crystal Palace til að ganga frá félagaskiptum sínum til AC Milan á Ítalíu, en hann lýsti yfir óánægju sinni á Instagram í gær.

Milan bauð 35 milljónir punda í Mateta og er í raun búið að ganga frá samkomulagi en framherjinn bíður eftir því að fá græna ljósið til að fara til Ítalíu.

Sky Sports segir að Palace vilji ekki gefa honum leyfi til að fara fyrr en félagið finnur mann í hans stað.

Mateta, sem er 28 ára gamall, lýsti greinilega yfir óánægju sinni með því að birta mynd með lyndistákni en þar má túlka að hann sé pirraður yfir stöðunni.

Félagaskiptaglugginn lokar á mánudag og er því enn nægur tími til stefnu.


Athugasemdir
banner
banner