Sky Sports greinir frá því að Englandsmeistarar Liverpool séu búnir að semja við Rennes um kaupverð fyrir miðvörðinn eftirsótta Jérémy Jacquet.
Liverpool borgar 55 milljónir punda með 5 auka milljónir í árangurstengdar aukagreiðslur, svo heildarupphæðin gæti orðið 60 milljónir.
Hinn 20 ára Jacquet er skotmark fyrir nokkur af stærstu félagsliðum Evrópu. Hann vildi upprunalega fara til Chelsea en er búinn að skipta um skoðun og er tilbúinn að ganga til liðs við Liverpool. Félögin lögðu fram sama kauptilboð í leikmanninn sem kaus Liverpool.
Sky segir að yfirvofandi félagaskipti Mamadou Sarr til Chelsea hafi átt þátt í ákvörðun Jacquet að samþykkja frekar samning frá Liverpool, þar sem hann telur sig eiga greiðari leið inn í byrjunarliðið á Anfield heldur en á Stamford Bridge.
Það er mjög mikið af ungum og efnilegum miðvörðum á samningi hjá Chelsea og því er Jacquet spenntari fyrir Liverpool.
Jacquet fer í læknisskoðun á morgun en mun ekki klæðast Liverpool treyjunni fyrr en næsta sumar.
01.02.2026 22:47
Bayern og Real eru með í kappinu um Jacquet
???????? BREAKING: Jeremy Jacquet to Liverpool, here we go! Deal agreed now for June 2026, as revealed.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) February 1, 2026
Understand fee is €60m plus €10m add-ons to Rennes. Jeremy has agreed personal terms with #LFC.
Agreement done for summer 2026 for one of the most talented CBs in the world. pic.twitter.com/eVoA75oAiQ
Athugasemdir




