Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
banner
   sun 01. febrúar 2026 18:01
Ívan Guðjón Baldursson
18 ára búin að skora sitt fyrsta deildarmark í Hollandi
Áslaug Munda lagði upp
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Inter
Það komu nokkrir Íslendingar við sögu í kvennaboltanum víðsvegar um Evrópu í dag þar sem Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir var í byrjunarliði PEC Zwolle í efstu deild í Hollandi og skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið.

Ragnheiður Þórunn er aðeins 18 ára gömul og þykir gríðarlega mikið efni. Hún er á góðri leið með að vinna sér inn fast byrjunarliðssæti í sterku liði Zwolle sem er í toppbaráttunni.

Zwolle vann 2-0 gegn AZ Alkmaar og er aðeins þremur stigum frá toppsæti deildarinnar eftir sigurinn, með 27 stig eftir 13 umferðir.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir hélt þá hreinu í sigri Inter gegn Ternana í efstu deild á Ítalíu. Inter vann aðeins með eins marks mun þrátt fyrir yfirburði á vellinum og fékk Karólína Lea Vilhjálmsdóttir að spila síðasta hálftímann. Inter er í öðru sæti með 24 stig eftir 12 umferðir, fimm stigum á eftir toppliði Roma.

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir var svo í byrjunarliðinu og lagði upp í sex marka jafntefli hjá Parma gegn Roma á meðan Birta Georgsdóttir byrjaði í liði Genoa sem tapaði fyrir AC Milan.

Þetta er frábært jafntefli fyrir Parma sem er með 9 stig eftir 12 umferðir, tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið. Genoa er með 7 stig.

Í þýska boltanum lék Ingibjörg Sigurðardóttir allan leikinn í sigri Freiburg gegn Hamburger SV. Freiburg er með 26 stig eftir 16 umferðir, aðeins tveimur stigum frá meistaradeildarsæti.

Telma Ívarsdóttir var að lokum ekki í hóp er Rangers lagði Celtic að velli eftir vítaspyrnukeppni í undanúrslitum skoska bikarsins.

PEC Zwolle 2 - 0 AZ Alkmaar
1-0 Britt Udink ('25)
2-0 Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir ('62)

Ternana 0 - 1 Inter
0-1 Marie Detruyer ('6)

Hamburger 0 - 2 Freiburg
0-1 J. Stierli ('25)
0-2 S. Folmli ('82)

Rangers 3 - 3 Celtic
4-2 í vítaspyrnukeppni
Athugasemdir
banner