Bakvörðurinn Nathan Patterson verður áfram hjá Everton út tímabilið.
Everton hafnaði tilboði Genoa í hægri bakvörðinn sem er sagður ánægður hjá félaginu.
Hann vill halda áfram að berjast um sæti sitt í liðinu og kemur því ekki til greina að fara fyrir gluggalok.
Patterson er 24 ára gamall Skoti sem hefur spilað með Everton frá 2022.
Hann hefur byrjað í þremur af síðustu fimm deildarleikjum Everton og alls spilað sjö leiki í deild- og bikar.
Athugasemdir



