Benjamin Sesko var hetja Man Utd þegar liðið vann dramatískan sigur á Fulham. Sesko skoraði sigurmarkið í uppbótatíma eftir að Fulham hafði jafnað metin eftir að hafa verið tveimur mörkum undir.
„Þetta var ótrúlegt. Það er ótrúlegt að skora á heimavelli og það sigurmarkið. Mig hefur dreymt um að ég gæti það. Við vitum allir hversu mikilvæg þessi úrslit eru. Við erum á frábæru skriði og vonumst til að við getum haldið áfram að leggja hart að okkur til að vinna leiki. Ég er mjög ánægður að geta hjálpað liðinu að vinna leiki," sagði Sesko.
Casemiro greindi frá því á dögunum að hann muni yfirgefa félagið þegar samningur hans við félagið rennur út í sumar. Hann skoraði fyrsta mark leiksins í dag.
„Hann er ótrúlegur leikmaður, goðsögn. Það er gaman að spila með honum og líka að hlusta á ráðin frá honum. Hann er gríðarlega duglegur og gefur öllu liðinu hvatningu. Við erum þakklátir að hafa hann hér," sagði Sesko.
Athugasemdir


