Sádi-arabísku meistararnir í Al-Ittihad eru búnir að hafna tilboði frá Inter í kantmanninn Moussa Diaby.
Ítalska stórveldið vildi fá Diaby á lánssamningi með 35 milljón evra kaupmöguleika, en því tilboði var hafnað.
Diaby er 26 ára kantmaður með 11 A-landsleiki að baki fyrir Frakkland eftir að hafa verið lykilmaður upp yngri landsliðin.
Hann lék fyrir Paris Saint-Germain og Bayer Leverkusen áður en hann skipti yfir til Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni, þaðan sem Al-Ittihad keypti hann.
Arabarnir borguðu um 60 milljónir evra til að kaupa Diaby úr röðum Villa sumarið 2024. Kantmaðurinn er með þrjú og hálft ár eftir af samningi.
29.01.2026 07:00
Staðfestir viðræður um Diaby
Athugasemdir




