Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
banner
   sun 01. febrúar 2026 16:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Sesko hetja Man Utd í dramatískum sigri
Mynd: EPA
Dango Ouattara
Dango Ouattara
Mynd: Brentford
Man Utd fékk tækifæri til að vinna þriðja leikinn í röð undir stjórn Michael Carrick þegar Fulham kom í heimsókn á Old Trafford í dag.

Man Utd hafði unnið Man City og Arsenal, tvö efstu lið deildarinnar, og er því með mikið sjálfstraust.

Fulham fékk dauðafæri snemma leiks þegar Joachim Andersen fleytti boltanum í átt að marki af stuttu færi en Senne Lammens varði frábærlega.

Stuttu síðar var dæmd vítaspyrna á Fulham þegar Jorge Cuenca braut á Matheus Cunha. Atvikið var skoðað í VAR og niðurstaðan var sú að brotið var fyrir utan teiginn og aukaspyrna dæmd. Bruno Fernandes átti fyrirgjöf úr aukaspyrnunni og Casemiro skallaði boltann í netið og kom Man Utd yfir.

Cunha bætti síðan öðru markinu við snemma í seinni hálfleik. Cuenca hélt að hann hefði minnkað muninn um tíu mínútum síðar en það var naum rangstaða í aðdragandanum og markið dæmt af.

Þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma var Harry Maguire dæmdur brotlegur inn í teig og vítaspyrna dæmd þar sem Raul Jimenez skoraði af miklu öryggi og minnkaði muninn.

Brasiilíumaðurinn Kevin jafnaði síðan metin í uppbótatíma með glæsilegu marki en hann átti skot frá vinstri og boltinn söng í fjærhorninu.

Níu mínútum var bætt við venjulegan leiktíma og þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma tryggði Benjamin Sesko dramatískan sigur Man Utd.

Uppbótatíminn var mikill í leikjum dagsins en það voru tíu mínútum bætt við þegar Brentford heimsótti Aston Villa.

Kevin Schade fékk að líta rauða spjaldið undir lok fyrri hálfleiks fyrri að sparka í bringuna á Matty Cash þegar þeir voru í einhverjum kíting.

Þrátt fyrir að vera manni færri komst Brentford yfir þegar Dango Ouattara skoraði úr þröngu færi.

Tammy Abraham var í byrjunarliði Aston Villa í fyrsta sinn eftir komuna frá Besiktas á dögunum og hann kom boltanum í netið snemma í seinni hálfleik en markið var dæmt af.

Eins og fyrr segir var tíu mínútum bætt við en fleiri mörk urðu ekki skoruð og því sterkur sigur Brentford staðreynd.

Morgan Gibbs-White kom Nottingham Forest yfir gegn Crystal Palace snemma leiks.

Undir lok fyrri hálfleiks fékk Neco Williams rautt spjald fyrir að verja boltann með hendinni á línu, hvaða markvörður sem er hefði verið stoltur af þessari vörslu.

Ismaila Sarr, sem var fremstur hjá Palace í fjarveru Jean-Philippe Mateta, steig á punktinn og skoraði.

Hvorugu liðinu tókst að ógna markinu af einhverju viti í seinni hálfleik og jafntefli því niðurstaðan.

Manchester Utd 3 - 2 Fulham
1-0 Casemiro ('19 )
2-0 Matheus Cunha ('56 )
2-1 Raul Jimenez ('85 , víti)
3-1 Benjamin Sesko ('90 )
3-2 Kevin ('90 )

Aston Villa 0 - 1 Brentford
0-1 Dango Ouattara ('45 )
Rautt spjald: Kevin Schade, Brentford ('42)

Nott. Forest 1 - 1 Crystal Palace
1-0 Morgan Gibbs-White ('5 )
1-1 Ismaila Sarr ('45 , víti)
Rautt spjald: Neco Williams, Nott. Forest ('45)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 24 16 5 3 46 17 +29 53
2 Man City 24 15 4 5 48 21 +27 49
3 Aston Villa 24 14 4 6 35 26 +9 46
4 Man Utd 24 11 8 5 44 36 +8 41
5 Chelsea 24 11 7 6 42 27 +15 40
6 Liverpool 24 11 6 7 39 33 +6 39
7 Brentford 24 11 3 10 36 32 +4 36
8 Fulham 24 10 4 10 34 35 -1 34
9 Everton 24 9 7 8 26 27 -1 34
10 Newcastle 24 9 6 9 33 33 0 33
11 Sunderland 23 8 9 6 24 26 -2 33
12 Bournemouth 24 8 9 7 40 43 -3 33
13 Brighton 24 7 10 7 34 32 +2 31
14 Crystal Palace 24 7 8 9 25 29 -4 29
15 Tottenham 24 7 7 10 33 32 +1 28
16 Leeds 24 6 8 10 31 42 -11 26
17 Nott. Forest 24 7 5 12 24 35 -11 26
18 West Ham 24 5 5 14 29 48 -19 20
19 Burnley 23 3 6 14 25 44 -19 15
20 Wolves 24 1 5 18 15 45 -30 8
Athugasemdir
banner
banner