Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Framlengdi eftir mjög gott tímabil og tilboð frá meisturunum - „Finn að félagið trúir á mig"
Átti mjög gott tímabil með Fram.
Átti mjög gott tímabil með Fram.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Það þýðir að maður sé að gera eitthvað rétt'
'Það þýðir að maður sé að gera eitthvað rétt'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gareth Owen var markmannsþjálfari Fram en er í dag tæknilegur ráðgjafi fótboltadeildar Vals.
Gareth Owen var markmannsþjálfari Fram en er í dag tæknilegur ráðgjafi fótboltadeildar Vals.
Mynd: Valur
Kristján Finnbogason er mættur í Úlfarsárdalinn.
Kristján Finnbogason er mættur í Úlfarsárdalinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Freyr Sigurðsson var á lokahófi Fram valinn besti leikmaður liðsins tímabilið 2025. Viktor kom á frjálsri sölu frá Leikni eftir tímabilið 2024 og var fljótlega á tímabilinu orðinn aðalmarkmaður liðsins.

Hann greip tækifærið í bikarleik gegn FH og leit aldrei um öxl. Eftir að síðasta tímabili lauk bauð Víkingur í Viktor en Fram hafnaði tilboðinu. Á dögunum skrifaði hann svo undir nýjan samning við Fram. Hann ræddi þá ákvörðun við Fótbolta.net.

„Tilfinningin er mjög góð. Það er ákveðinn léttir að vera búinn að ganga frá þessu og geta einbeitt sér alfarið að verkefninu fram undan. Viðræðurnar tóku ekki langan tíma og komumst við að samkomulagi sem hentaði báðum aðilum. Fram sýndi mér mikið traust og ég finn að félagið trúir á mig, bæði sem leikmann og persónu. Mér líður vel hér, er í góðu umhverfi og fann að þetta væri rétta skrefið fyrir mig á þessum tímapunkti á ferlinum," segir Viktor Freyr.

Fyrri samningur Viktors við Fram hefði runnið út eftir tímabilið 2026. Hugsaði hann um þann möguleika að halda samningsmálum opnum, að bíða og sjá hvað myndi gerast?

„Auðvitað fór maður yfir alla möguleika og hugsaði þetta vel að halda samningsmálunum opnum, en að lokum fannst mér besta ákvörðunin að framlengja við Fram."

Hvernig var að heyra að Íslandsmeistararnir hefðu áhuga á þér?

„Það er alltaf gaman þegar manni er sýndur áhugi, það þýðir að maður sé að gera eitthvað rétt."

Samheldnin lykillinn
Hvernig horfir þú til baka á síðasta tímabil, hver var lykillinn að þessari spilamennsku?

„Ég horfi mjög jákvætt til baka á síðasta tímabil. Liðið stóð sig vel og við erum með góða leikmenn í öllum stöðum. Samheldnin í hópnum var lykillinn að góðri spilamennsku í sumar."

Sigurjón Daði Harðarson er kominn til Fram frá Fjölni til að veita Viktor samkeppni. Hvernig leggst það í Viktor?

„Mér líst mjög vel á það. Samkeppni er bara af hinu góða og gerir alla betri. Sigurjón er góður markmaður og við náum mjög vel saman. Svona á þetta að vera í góðu liði."

Gareth Owen farinn í Val og Kristján Finnbogason mættur, hvernig líst Viktori á Stjána Finnboga?

„Mér líst mjög vel á Stjána. Það er alltaf einhver breyting þegar nýr þjálfari tekur við, en fyrstu vikurnar hefur Stjáni komið mjög vel inní þetta með sína miklu reynslu."

„Gareth hjálpaði mér mjög mikið og á ég honum margt að þakka,"
segir Viktor Freyr.
Athugasemdir
banner
banner