Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
banner
   sun 01. febrúar 2026 14:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sanchez svaraði stuðningsmönnum í hálfleik
Mynd: EPA
Robert Sanchez, markvörður Chelsea, svaraði reiðum stuðningsmönnum á leiðinni inn í klefa í hálfleik þegar liðið var tveimur mörkum undir gegn West Ham á Stamford Bridge í gær.

„Styðjið okkur. Það eru 45 mínútur eftir, þetta er aldrei búið," heyrðist Sanchez segja á myndbandi sem var birt á X.

Stuðningsmenn Chelsea bauluðu á liðið eftir fyrri hálfleikinn en Chelsea átti stórkostlegan seinni hálfleik og Enzo Fernandez tryggði liðinu sigurinn með marki í uppbótatíma eftir að Joao Pedro og Marc Cucurella höfðu skorað sitt markið hvor.

„Þeir áttu rétt á því að baula á kkur. Ég hefði gert það líka í fyrri hálfleik. Frammistaðan var alls ekki nógu góð hvað varðar orku og ákvörðunatöku. Ég er svo stoltur af því að sjá þá svo ánægða með það sem þeir sáu 45 mínútum seinna," sagði Liam Rosenior, stjóri Chelsea.


Athugasemdir
banner
banner