Hákon tapaði í Lyon
Það fóru fimm leikir fram í efstu deild franska boltans í dag þar sem topplið Paris Saint-Germain heimsótti Strasbourg í spennandi slag.
Leikurinn var afar jafn en heimamenn í Strasbourg fengu betri færi. Joaquín Panichelli klúðraði vítaspyrnu á 20. mínútu og refsaði táningurinn Senny Mayulu skömmu síðar til að ná forystunni fyrir PSG.
Guela Doué svaraði með jöfnunarmarki fyrir leikhlé og hélt leikurinn áfram að vera afar jafn eftir leikhlé.
Achraf Hakimi fékk að líta beint rautt spjald fyrir hættulega tæklingu á 75. mínútu og voru heimamenn alltof ákafir í leit sinni að sigurmarki. Þeir skildu vörnina eftir opna svo tíu leikmönnum PSG tókst að refsa þeim með marki úr skyndisókn sem reyndist sigurmark leiksins. Vinstri bakvörðurinn Nuno Mendes fann orku í tanknum til að spretta upp allan völlinn og klára með skalla úr dauðafæri eftir frábæran undirbúning frá Warren Zaïre-Emery.
Lokatölur 1-2 fyrir ríkjandi meistara PSG sem eru með 48 stig eftir 20 umferðir, tveimur stigum fyrir ofan Lens í titilbaráttunni.
Fyrr í dag lék Hákon Arnar Haraldsson allan leikinn er Lille tapaði stórleik gegn Lyon.
Daninn efnilegi Noah Nartey, sem er nýkominn til Lyon frá Bröndby, skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik eftir undirbúning frá varnarmanninum Ruben Kluivert, sem er yngri bróðir Justin Kluivert.
Lille var sterkari aðilinn í síðari hálfleik en tókst ekki að skapa sérlega góð færi svo lokatölur urðu 1-0. Þetta var fjórði tapleikur Lille í röð í deildinni og er liðið búið að tapa sex leikjum af síðustu sjö í öllum keppnum.
Þetta var aftur á móti tíundi sigur Lyon í röð í öllum keppnum og situr liðið í fjórða sæti frönsku deildarinnar með 39 stig eftir 20 umferðir. Lille er í fimmta sæti með 32 stig.
Nice og Brest þá skildu jöfn í dag, 2-2, á meðan það var markalaust hjá Toulouse og Auxerre. Að lokum hafði Angers betur gegn Metz.
Strasbourg 1 - 2 PSG
0-0 Joaquin Panichelli, misnotað víti ('20)
0-1 Senne Mayulu ('22)
1-1 Guela Doue ('27)
1-2 Nuno Mendes ('81)
Rautt spjald: Achraf Hakimi, PSG ('75)
Lyon 1 - 0 Lille
1-0 Noah Nartey ('37)
Nice 2 - 2 Brest
Toulouse 0 - 0 Auxerre
Angers 1 - 0 Metz
Athugasemdir




