Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
   sun 01. febrúar 2026 15:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Tottenham og Man City: Meiðslavandræði hjá Tottenham
Antoine Semenyo og Marc Guehi byrja
Antoine Semenyo og Marc Guehi byrja
Mynd: EPA
Tottenham fær Man City í heimsókn í síðasta leik dagsins í úrvalsdeildinni.

Pep Guardiola gerir þrjár breytingar á liði City sem vann Galatasaray í Meistaradeildinni í vikunni. Antoine Semenyo, Rodri og Marc Guehi koma inn fyrir Jeremy Doku, Omar Marmoush og Nathan Ake.

Það eru mikil meiðslavandræði í vörninni hjá Tottenham. Það er útlit fyrir að annað hvort Palhinha eða Archie Gray sé í hægri bakverðinum.

Spurs: Vicario; Gray, Dragusin, Romero, Udogie; Palhinha, Bissouma, Gallagher; Kolo Muani, Simons, Solanke.
Varamenn: Kinsky, Tel, Odobert, Sarr, Souza, Olusesi, Kyerematen, Byfield, Rowswell.

Man City: Donnarumma, Nunes, Khusanov, Guéhi, Ait-Nouri, Rodri, Bernardo, O’Reilly, Semenyo, Cherki, Haaland
Varamenn: Trafford, Reijnders, Ake, Marmoush, Nico, Foden, McAidoo, Alleyne, Lewis
Athugasemdir
banner