Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 16:13
Elvar Geir Magnússon
Arsenal skoðar markaðinn vegna meiðsla Merino
Arsenal er í leit að leikmanni vegna meiðsla spænska miðjumannsins Mikel Merino.
Arsenal er í leit að leikmanni vegna meiðsla spænska miðjumannsins Mikel Merino.
Mynd: EPA
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, staðfestir að félagið sé að skoða leikmannamarkaðinn vegna meiðsla miðjumannsins Mikel Merino.

Merino meiddist í tapleiknum gegn Manchester United nýlega og þarf að gangast undir aðgerð. Í tilkynningu frá Arsenal segir að stefnt sé að því að Merino muni snúa aftur til æfinga að fullu áður en tímabilinu lýkur.

Merino hefur reynst Arsenal mikilvægur. Liðið leikur seinni undanúrslitaleik sinn gegn Chelsea í deildabikarnum annað kvöld og á fréttamannafundi í aðdraganda þess leiks staðfesti Arteta að verið væri að kanna markaðinn.

„Við erum að kanna markaðinn og munum gera það áfram. Ef við finnum lausn þá munum við stökkva á hana, ef ekki þá höldum við bara áfram," segir Arteta. „Þegar þú missir svona mikilvægan mann úr hópnum þá þar að skoða stöðuna og við getum allt sem við getum til að athuga hvort það sé leikmaður fáanlegur."

Sagt var frá því fyrr í dag að Arsenal hefði athugað hvort hægt væri að fá Sandro Tonali frá Newcastle en fengið þau svör samstundis að hann væri ekki til sölu.

Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 í kvöld. Fótbolti.net stendur vaktina og færir ykkur allar helstu fréttir.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 24 16 5 3 46 17 +29 53
2 Man City 24 14 5 5 49 23 +26 47
3 Aston Villa 24 14 4 6 35 26 +9 46
4 Man Utd 24 11 8 5 44 36 +8 41
5 Chelsea 24 11 7 6 42 27 +15 40
6 Liverpool 24 11 6 7 39 33 +6 39
7 Brentford 24 11 3 10 36 32 +4 36
8 Fulham 24 10 4 10 34 35 -1 34
9 Everton 24 9 7 8 26 27 -1 34
10 Newcastle 24 9 6 9 33 33 0 33
11 Sunderland 23 8 9 6 24 26 -2 33
12 Bournemouth 24 8 9 7 40 43 -3 33
13 Brighton 24 7 10 7 34 32 +2 31
14 Tottenham 24 7 8 9 35 33 +2 29
15 Crystal Palace 24 7 8 9 25 29 -4 29
16 Leeds 24 6 8 10 31 42 -11 26
17 Nott. Forest 24 7 5 12 24 35 -11 26
18 West Ham 24 5 5 14 29 48 -19 20
19 Burnley 23 3 6 14 25 44 -19 15
20 Wolves 24 1 5 18 15 45 -30 8
Athugasemdir
banner
banner
banner