Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
   sun 01. febrúar 2026 13:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Wolves samþykkir tilboð Palace í Strand Larsen
Mynd: EPA
Sky Sports greinir frá því að Wolves sé búið að samþykkja tilboð Crystal Palace í norska framherjann Jörgen Strand Larsen.

Tilboðið er talið vera 43 milljónir punda og hækki upp í 48 milljónir punda eftir ákvæðum. Þetta er annað tilboð Palace í leikmanninn en fyrra tilboðið var hærra. Það hljóðaði upp á 45 milljónir punda og hefði farið upp í 50 milljónir eftir ákvæðum.

Palace er að reyna fá Strand Larsen þar sem Jean-Philippe Mateta er líklega á leiðinni til AC Milan.

Mateta vill fara en Palace leyfir honum ekki að fara fyrr en félagið hefur nælt í leikmann í staðinn.
Athugasemdir
banner
banner