Það komu nokkrir Íslendingar við sögu í leikjum dagsins víða um Evrópu þar sem Alfons Sampsted spilaði sinn fyrsta leik fyrir Go Ahead Eagles á útivelli gegn Volendam.
Eagles náði forystunni í fyrri hálfleik en í síðari hálfleik lét Alfons reka sig af velli með seinna gula spjaldið sitt, eftir að hafa fengið það fyrra fyrir leikhlé.
Alfons sá rautt á 62. mínútu og því léku gestirnir manni færri síðasta hálftímann og náðu andstæðingarnir að gera jöfnunarmark, svo lokatölur urðu 1-1.
Liðin áttust við í fallbaráttuslag. Alfons og félagar eiga 22 stig eftir 20 umferðir, fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Sverrir Ingi Ingason lék þá allan leikinn og fékk að líta gult spjald í sigri Panathinaikos í gríska boltanum. Liðið er í fimmta sæti efstu deildar með 29 stig eftir 18 umferðir á vonbrigðatímabili fyrir félagið.
Hörður Björgvin Magnússon var þá ekki með vegna veikinda í sigri Levadiakos sem er að eiga magnað tímabil í grísku deildinni. Liðið er í fjórða sæti með 38 stig, aðeins fjórum stigum á eftir stórveldi Olympiakos. Liðið var án fjögurra leikmanna í dag sem eru allir með sömu veiruna og komnir á sýklalyf.
Í Hollandi var Kolbeinn Birgir Finnsson utan hóps hjá Utrecht enda er hann að skipta yfir í norska boltann.
Íslendingalið AGF og FC Kaupmannahöfn mættust svo í æfingaleik í Danmörku þar sem Aarhus hafði betur 4-0.
Að lokum lék Emilía Kiær Ásgeirsdóttir allan leikinn úti á kanti hjá RB Leipzig í efstu deild þýska boltans.
Leipzig gerði jafntefli við Freiburg og er með 14 stig eftir 16 umferðir, fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Volendam 1 - 1 Go Ahead Eagles
0-1 V. Edvardsen ('10)
1-1 R. Muhren ('74)
Rautt spjald: Alfons Sampsted, GA Eagles ('62)
Panathinaikos 3 - 0 Kifisia
Levadiakos 3 - 1 Asteras Tripolis
Heerenveen 1 - 1 Utrecht
AGF 4 - 0 FCK
Leipzig 2 - 2 Freiburg
Athugasemdir


