Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
   sun 01. febrúar 2026 23:09
Ívan Guðjón Baldursson
Toney vill ekki fara frá Al-Ahli
Toney er með eitt mark í sjö A-landsleikjum.
Toney er með eitt mark í sjö A-landsleikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: EPA
Enski framherjinn Ivan Toney hefur ekki áhuga á að flytja frá Sádi-Arabíu á miðju tímabili enda hefur hann verið að raða inn mörkunum með Al-Ahli.

Toney er kominn með 13 mörk og fjórar stoðsendingar í síðustu átta deildarleikjum sínum með Al-Ahli. Hann vill vera áfram hjá félaginu til að gefa sjálfum sér aukna möguleika á að komast í landsliðshóp Englands fyrir HM.

Toney hefur nokkrum sinnum verið orðaður við endurkomu til Englands eftir brottflutninginn til Sádi-Arabíu en núna síðast var hann orðaður við ítalska stórveldið Juventus.

Toney er markahæsti leikmaður efstu deildar í Sádi-Arabíu sem stendur með 18 mörk í 17 leikjum.

„Ég er að gera góða hluti og mér líður vel þar sem ég er. Ég tel mig eiga meiri möguleika á að komast í enska landsliðið fyrir HM ef ég held áfram á minni braut hér frekar en að skipta yfir í aðra deild," segir Toney, sem væri að berjast við Harry Kane um byrjunarliðssæti í landsliðinu.

„Harry Kane er bestur í heimi að klára færin sín, hann er með ótrúlega tölfræði. Ég held að hann sé búinn að skora fleiri mörk heldur en hann hefur spilað leiki."

Þrátt fyrir mikla markaskorun hjá Toney er Al-Ahli í þriðja sæti deildarinnar, með 43 stig eftir 18 umferðir.

„Það er ekki auðvelt að skora mörk í þessari deild. Þetta er erfið deild en ég er heppinn að vera í mjög góðu liði þar sem samherjarnir gefa mér aukin tækifæri til að skora. Ég er mjög þakklátur liðsfélögunum fyrir að leggja svona mikið uppfyrir mig eins og þeir eru eflaustir þakklátir mér fyrir að klára færin."

Riyad Mahrez, Enzo Millot, Franck Kessié og Galeno eru meðal liðsfélaga Toney hjá Al-Ahli.
Athugasemdir
banner
banner