Argentínumaðurinn Aaron Anselmino er á leið frá Chelsea til franska félagsins Strasbourg á láni út tímabilið.
Chelsea kallaði Anselmino til baka úr láni frá Borussia Dortmund eftir að þýska félagið lýsti yfir áhuga á að kaupa leikmanninn.
Eigendur Chelsea voru óánægðir með þá yfirlýsingu enda var markmiðið aðeins að gefa Anselmino mínútur á stærsta sviðinu og aldrei komið til greina að selja hann.
Anselmino er tvítugur miðvörður sem kom til félagsins síðasta sumar frá Boca Juniors.
Fabrizio Romano sagði í gær að Chelsea hafi samþykkt að lána Argentínumanninn til Strasbourg, en bæði félög eru í eigu BlueCo og ættu skiptin því að ganga snurðulaust fyrir sig.
Anselmino verður þrettándi leikmaðurinn sem fer á milli þessara félaga síðan BlueCo eignaðist Strasbourg. Á dögunum kallaði Chelsea Kendry Paez til baka frá franska félaginu og sendi til River Plate í Argentínu, en núna leika tveir Chelsea-menn á láni hjá félaginu, þeir Mamadou Sarr og Mike Penders.
Athugasemdir




