Fjórtánda umferð enska ofurdeildartímabilsins var leikin í dag þar sem öll lið deildarinnar komu við sögu nema Arsenal sem er að keppa í Álfukeppninni eftir að hafa unnið Meistaradeildina í fyrra.
Topplið Manchester City tók á móti Englandsmeisturum Chelsea og gjörsamlega rúllaði yfir andstæðinga sína. Kerolin setti þrennu og komust Khadija Shaw og Vivianne Miedema einnig á blað í 5-1 sigri á meðan Alyssa Thompson gerði fánamark Chelsea.
Man City er með 39 stig eftir 14 umferðir og er hægt að segja að liðið sé komið með aðra hönd á titilinn. Manchester United situr í öðru sæti sem stendur, ellefu stigum eftirá.
Arsenal getur minnkað bilið niður í tíu stig þegar liðið spilar leikinn sem það á til góða, en það eru aðeins átta umferðir eftir af deildartímabilinu.
Man Utd lagði botnlið Liverpool að velli í dag en Liverpool er aðeins með 7 stig, einu stigi á eftir West Ham í fallbaráttunni. Það voru aðeins skandínavískir markaskorarar í leiknum.
Tottenham vann nágrannaslag gegn West Ham með einu marki á meðan London City og Everton báru einnig nauma sigra úr býtum.
Man City 5 - 1 Chelsea
1-0 Kerolin ('13)
2-0 Khadija Shaw ('36)
3-0 Kerolin ('49)
4-0 Kerolin ('54)
4-1 Alyssa Thompson ('68)
5-1 Vivianne Miedema ('72)
Man Utd 3 - 1 Liverpool
1-0 Lisa Naalsund ('52)
1-1 Alice Bergström ('59)
2-1 Lisa Naalsund ('60)
3-1 Fridolina Rolfo ('87)
West Ham 1 - 2 Tottenham
Brighton 1 - 2 London City
Everton 2 - 1 Aston Villa
Athugasemdir


