Það eru ýmis félög bæði innan og utan Englands sem hafa mikinn áhuga á að tryggja sér krafta Tyrique George á lánssamningi út tímabilið.
George er partur af breiðum leikmannahópi Chelsea og er félagið talið vera tilbúið að lána hann út.
George þykir gríðarlega efnilegur en hann á tvítugsafmæli í vikunni og hefur verið mikilvægur hlekkur upp ógnarsterk yngri landslið Englands.
Everton leiðir kapphlaupið um hann þar sem félagið vill fá George á lánssamningi með kaupmöguleika.
George er aðeins með eitt og hálft ár eftir af samningi sínum við Chelsea, en félagið hefur möguleika á að virkja eins árs framlengingu.
George leikur sem vinstri kantmaður að upplagi en getur einnig spilað á hægri kanti eða sem fremsti sóknarmaður. Hann hefur skorað 6 mörk í 37 keppnisleikjum með Chelsea.
Sunderland, Fulham og Roma eru meðal félagsliða sem hafa einnig verið nefnd til sögunnar, en Everton leiðir kappið. David Moyes þarf sárlega á nýjum kantmanni að halda.
Everton er í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar, með 34 stig eftir 24 umferðir.
Athugasemdir




