Arsenal 3 - 2 Corinthians
1-0 Olivia Smith ('15)
1-1 Gabi Zanotti ('21)
2-1 Carlotte Wubben-Moy ('58)
2-2 Vic Albuquerque ('96, víti)
3-2 Caitlin Foord ('104)
1-0 Olivia Smith ('15)
1-1 Gabi Zanotti ('21)
2-1 Carlotte Wubben-Moy ('58)
2-2 Vic Albuquerque ('96, víti)
3-2 Caitlin Foord ('104)
Arsenal vann fyrstu heimsálfukeppni í sögu kvennaboltans eftir framlengingu gegn Corinthians í kvöld.
Liðin mættust á Emirates leikvanginum í London og náðu heimakonur forystunni eftir stundarfjórðung þegar Olivia Smith kom boltanum í netið en gestirnir voru ekki lengi að svara.
Gabi Zanotti jafnaði metin á 21. mínútu svo staðan var jöfn í leikhlé. Arsenal hafði verið talsvert sterkara liðið fyrir leikhlé og náði Carlotte Wubben-Moy að endurheimta forystuna í síðari hálfleiknum.
Corinthians átti í erfiðleikum með að skapa sér færi og litu heimakonur líklegri út til að bæta við forystuna frekar en að fá mark á sig, allt þar til seint í uppbótartíma þegar vítaspyrna var dæmd.
Victória Albuquerque steig á punktinn og jafnaði metin á ný svo grípa þurfti til framlengingar í æsispennandi úrslitaleik.
Arsenal stjórnaði gangi mála í framlengingunni og náði forystunni enn eina ferðina, í þetta skiptið með marki frá Caitlin Foord.
Heimakonur héldu boltanum 85% af framlengingunni til að takmarka möguleika brasilísku gestanna á að gera þriðja jöfnunarmarkið.
Lokatölur 3-2 og sögulegur titill Arsenal staðreynd.
Corinthians lagði bandaríska félagið Gotham að velli í undanúrslitum. Gotham, sem vann norður-amerísku Meistaradeildina í fyrra, rúllaði svo yfir FAR Rabat í bronsleiknum.
Athugasemdir



