Orri Steinn Óskarsson fékk að spila síðasta korterið í nágrannaslagnum hjá Real Sociedad gegn Athletic Bilbao.
Real Sociedad var talsvert sterkara liðið í fyrri hálfleik og náði Goncalo Guedes forystunni en Athletic var við stjórn í síðari hálfleik.
Heimamönnum tókst ekki að skapa sér mikið þar til Brais Méndez fékk að líta beint rautt spjald í liði gestanna á 83. mínútu. Ínigo Ruiz de Galarreta gerði jöfnunarmark Athletic fimm mínútum síðar svo lokatölur urðu 1-1.
Nico Williams, sem hefur verið að glíma við meiðsli, spilaði fyrstu 72 mínúturnar í liði Athletic áður en honum var skipt af velli fyrir stóra bróður sinn Inaki Williams.
Fyrr í dag hafði Real Betis betur gegn Valencia eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik.
Gestirnir frá Valencia byrjuðu af miklum krafti og klúðruðu vítaspyrnu áður en Luis Rioja tók forystuna, sem lifði þó ekki lengi því Chimy Ávila steig á vítapunktinn á hinum endanum og jafnaði.
Staðan hélst jöfn í nokkuð jöfnum slag allt þar til á lokamínútunum, þegar fyrrum úrvalsdeildarleikmaðurinn Pablo Fornals gerði sigurmark fyrir heimamenn í liði Betis. Lokatölur 2-1 og fer Betis uppfyrir Espanyol í evrópubaráttunni með þessum sigri, á meðan Valencia er í fallbaráttu.
Brasilíski kantmaðurinn Antony spilaði nánast allan leikinn úti á hægri kanti og stóð sig vel.
Getafe og Celta Vigo mættust einnig í dag og gerðu markalaust jafntefli í afar tíðindalitlum leik. Getafe er í fallbaráttu og Celta í evrópubaráttu.
Athletic Bilbao 1 - 1 Real Sociedad
0-1 Goncalo Guedes ('37 )
1-1 Inigo Ruiz De Galarreta ('88 )
Rautt spjald: Brais Mendez, Real Sociedad ('83)
Betis 2 - 1 Valencia
0-0 Pepelu ('13 , Misnotað víti)
0-1 Luis Rioja ('20 )
1-1 Ezequiel Avila ('23 , víti)
2-1 Pablo Fornals ('88 )
Getafe 0 - 0 Celta Vigo
Athugasemdir



