Barcelona undirbýr tilboð í Lisandro Martinez - Curtis Jones orðaður við Inter - Camavinga orðaður við Arsenal og Liverpool
banner
   sun 01. febrúar 2026 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Slot: Munum reyna að styrkja hópinn fyrir gluggalok
Arne Slot
Arne Slot
Mynd: EPA
Arne Slot, stjóri Liverpool, segir að félagið muni reyna að styrkja leikmannahópinn áður en félagaskiptaglugginn lokar annað kvöld en þetta sagði hann eftir 4-1 sigurinn á Newcastle í gær.

Mikið er um meiðsli hjá Liverpool. Giovanni Leoni og Conor Bradley eru báðir frá út tímabilið og þá eru þeir Joe Gomez, Jeremie Frimpong, Stefan Bajcetic og Alexander Isak allir á meiðslalistanum.

Hugo Ekitike fór meiddur af velli í gær en Slot viðurkenndi það að félagið þarf að styrkja hópinn og verður allt reynt til þess að gera það áður en glugginn lokar.

Liverpool vill helst styrkja varnarlínuna, en Denzel Dumfries hjá Inter hefur verið orðaður við liðið. Liverpool er talið hafa áhuga á því að fá hann á láni út tímabilið. Einnig gæti félagið skoðað það að fá annan miðvörð í hópinn en Virgil van Dijk og Ibrahima Konate eru einu hreinræktuðu miðverðirnir sem eru heilir heilsu.

„Við munum reyna að styrkja hópinn þessa síðustu 48 tíma fyrir gluggalok. Ég veit ekki nákvæmlega hvað er í gangi í augnablikinu, en við kjósum helst að styrkja hópinn frekar en að veikja hann. Sjáum til hvað gerist," sagði Slot.
Athugasemdir
banner
banner
banner