Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 21. maí 2026 11:35
Elvar Geir Magnússon
Vilhjálmur Bretaprins drakk bjór með leikmönnum Aston Villa
Vilhjálmur Bretaprins, lengst til vinstri, heldur á Evrópudeildarbikarnum ásamt Unai Emery,
Vilhjálmur Bretaprins, lengst til vinstri, heldur á Evrópudeildarbikarnum ásamt Unai Emery,
Mynd: X
Vilhjálmur Bretaprins, prinsinn af Wales, er mikill stuðningsmaður Aston Villa og hann lét sig ekki vanta þegar Villa vann Freiburg í úrslitaleik Evrópudeildarinnar, 3-0.

Hann fagnaði af innlifun í stúkunni, mætti í klefann til að fagna með leikmönnum eftir leik og drakk svo bjór með þeim.

„Hann fékk sér bjór með okkur. Hann var í skýjunum. Hann er mikill stuðningsmaður og kemur reglulega á æfingasvæðið og líka á Villa Park. Hann á svona stund skilið," segir Matty Cash, varnarmaður Aston Villa.

Youri Tielemans og Emi Buendía skoruðu stórglæsileg mörk í leiknum í gær og Morgan Rogers innsiglaði svo sigurinn.

Vilhjálmur Bretaprins byrjaði að halda með Aston Villa þegar hann var í skóla en hann segist hafa ákveðið að velja lið sem var um miðja deild á meðan flestir vinir hans héldu með Manchester United og Chelsea.


Slapp
banner
banner