Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 21. maí 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Lautaro vill klára ferilinn hjá Inter
Mynd: EPA
Argentínski framherjinn Lautaro Martínez elskar lífið í Mílanó. Hann er fyrirliði Ítalíu- og bikarmeistara Inter og vill helst klára ferilinn með félaginu.

Lautaro er 28 ára landsliðsmaður Argentínu sem hefur verið eftirsóttur af ýmsum stórveldum í gegnum tíðina en alltaf kosið að vera áfram hjá Inter.

Hann á þrjú ár eftir af samningi sínum við félagið og er búinn að skora 22 mörk í 40 leikjum á tímabilinu, auk þess að gefa 6 stoðsendingar.

„Ég er svo hamingjusamur hérna að ég get ekki ímyndað mér sjálfan mig á neinum öðrum stað. Ef þeir sparka mér ekki út þá mun ég klára ferilinn hérna," sagði Lautaro meðal annars við Gazzetta dello Sport.

Lautaro hefur skorað 175 mörk í 375 keppnisleikjum með Inter á átta árum. Hann hefur verið einn af bestu leikmönnum ítölsku deildarinnar frá komu sinni til landsins.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 38 27 6 5 89 35 +54 87
2 Napoli 38 23 7 8 58 36 +22 76
3 Roma 38 23 4 11 59 31 +28 73
4 Como 38 20 11 7 65 29 +36 71
5 Milan 38 20 10 8 53 35 +18 70
6 Juventus 38 19 12 7 61 34 +27 69
7 Atalanta 38 15 14 9 51 36 +15 59
8 Bologna 38 16 8 14 49 46 +3 56
9 Lazio 38 14 12 12 41 40 +1 54
10 Udinese 38 14 8 16 45 48 -3 50
11 Sassuolo 38 14 7 17 46 50 -4 49
12 Parma 38 11 12 15 28 46 -18 45
13 Torino 38 12 9 17 44 63 -19 45
14 Cagliari 38 11 10 17 40 53 -13 43
15 Fiorentina 38 9 15 14 41 50 -9 42
16 Genoa 38 10 11 17 41 51 -10 41
17 Lecce 38 10 8 20 28 50 -22 38
18 Cremonese 38 8 10 20 32 57 -25 34
19 Verona 38 3 12 23 25 61 -36 21
20 Pisa 38 2 12 24 26 71 -45 18
Slapp
banner
banner
banner