Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 21. maí 2026 09:35
Elvar Geir Magnússon
Skrúðganga fyrir Aston Villa í Birmingham
Vilhjálmur Bretaprins mætti á leikinn í Istanbúl.
Vilhjálmur Bretaprins mætti á leikinn í Istanbúl.
Mynd: EPA
Í dag verður haldin skrúðganga í Birmingham þar sem Evrópudeildartitli Aston Villa verður fagnað.

Villa vann 3-0 sigur gegn þýska liðinu Freiburg í úrslitaleik í Istanbúl í gær og fagnaði sínum fyrsta Evróputitli síðan 1982.

Skrúðgangan hefst 16:30 að staðartíma í dag, 15:30 að íslenskum tíma. Lið Aston Villa verður hyllt þar sem það mun vera keyrt um á þaklausri rútu.

Í miðri skrúðgöngunni verður bikarnum lyft.
Slapp
banner
banner
banner