Southampton var vikið úr úrslitaleik umspilsins og mun Middlesbrough í staðinn mæta Hull City á laugardaginn á Wembley, í leik um sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Southampton viðurkenndi að hafa njósnað um æfingar hjá þremur andstæðingum sínum í Championship-deildinni á þessu tímabili. Auk þess að vera dæmt úr leik í umspilinu þá mun liðið byrja næsta tímabil með fjögur mínusstig.
Brasilíumaðurinn Leo Scienza átti skínandi tímabil, skoraði sjö mörk og átti tíu stoðsendingar.

Hann hefur nú tjáð sig um refsinguna sem Southampton fékk, í gegnum færslu á Instagram.
„Vonbrigði, reiði, sorg.... það er erfitt finna réttu orðin fyrir tilfininguna núna. Það eru allir niðurbrotnir, allir í klefanum og umfram allt stuðningsmenn okkar. Þetta átti aldrei að enda svona," segir Scienza.
„Ég finn til með öllum stuðningsmönnum og líka leikmönnum Hull og Boro sem flæktust í þessa ringulreið. Við gáfum allt fyrir drauminn og fórnuðum miklu, trúðum að við gætum komið félaginu aftur þar sem það á heima. Draumurinn um að spila í úrvalsdeildinni fékk mig til að gefa allt sem ég. Þess vegna er sársaukinn svona djúpur."
„Það erfiðasta er að stuðningsmenn okkar eiga þetta ekki skilið. Þið hafið staðið við bakið á okkur allt tímabilið með magnaðri ástríðu, tryggð og trú. Jafnvel á erfiðustu tímum þá ýttuð þið okkur áfram. Takk fyrir að standa með okkur í gegnum allt. Þið áttuð þetta ekki skilið."
Talið er líklegt að stjórinn Tonda Eckert verði látinn taka pokann sinn vegna málsins.