UEFA samþykkti á fundi í gær að breyta fyrirkomulaginu í undankeppnum fyrir HM og EM í Evrópu og tekur nýja fyrirkomulagið gildi eftir EM 2028.
Fyrirkomulagið minnir á svissneska módelið sem hefur verið tekið upp í félagsliðakeppnum í Evrópu í bland við Þjóðadeildarfyrirkomulagið. Breytingin er gerð til að fjölga stærri og jafnari leikjum.
Fyrirkomulagið minnir á svissneska módelið sem hefur verið tekið upp í félagsliðakeppnum í Evrópu í bland við Þjóðadeildarfyrirkomulagið. Breytingin er gerð til að fjölga stærri og jafnari leikjum.
Tólf landslið verða í efri deild, skipt í þrjá fjögurra liða riðla. Hin átján landsliðin verða í þremur sex liða riðlum í neðri deild.
Hvert lið mun spila sex leiki, þrjá heima og þrjá úti, sem verða dregnir eftir styrkleikaröðun.
Ótilgreindur fjöldi liða í hverjum riðli í efri deild mun komast beint á stórmót en umspilskeppni verður svo haldin þar sem lið mæta andstæðingum úr neðri deildinni.
24 lið taka þátt í lokakeppni EM og Evrópa fær 16 sæti á HM.



