Eysteinn Ernir Sverrisson er nýkominn úr meiðslum og gerir þriggja ára samning við uppeldisfélag sitt Selfoss.
Eysteinn lék upp yngri flokka Selfoss og þykir bráðefnilegur. Hann er fæddur 2007 og á átta leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands.
Hann hefur undanfarin tímabil stimplað sig inn sem lykilmaður í byrjunarliðinu og býr yfir góðri reynslu með meistaraflokki þrátt fyrir ungan aldur. Hann lék alla leiki liðsins nema einn í Lengjudeildinni í fyrra en hefur ekki enn komið við sögu í 2. deildinni í sumar vegna meiðsla.
Eysteinn er nýbyrjaður að æfa aftur með liðsfélögunum eftir meiðsli og fagnar endurkomunni á grasið með nýjum samningi.

