Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   fim 21. maí 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Úrslitin ráðast í Sádi-Arabíu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Lokaumferð deildartímabilsins í Sádi-Arabíu fer fram seinnipart dagsins og er enn spenna í titilbaráttunni, Asíubaráttunni og fallbaráttunni.

Cristiano Ronaldo og félagar í Al-Nassr eru með tveggja stiga forystu fyrir lokaumferðina en þeir verða að sigra á heimavelli gegn fallbaráttuliði Damac til að tryggja sér titilinn.

Jafntefli dugar þeim ekki ef Al-Hilal vinnur sinn leik á útivelli gegn Chris Smalling og félögum í Al-Fayha.

Takist Al-Nassr að vinna verður það í fyrsta sinn sem Ronaldo vinnur titilinn í Sádi-Arabíu frá komu sinni í deildina. Bæði Al-Nassr og Al-Hilal eru með stjörnum prýdd byrjunarlið og þjálfara í heimsklassa.

Ríkjandi meistarar Al-Ittihad hafa átt mikið vonbrigðatímabil og sitja í fimmta sæti fyrir lokaumferðina, sem veitir þátttökurétt í forkeppni asísku Meistaradeildarinnar. Al-Ittihad á erfiðan leik gegn lærlingum Brendan Rodgers í Al-Qadsiah en nægir jafntefli til að tryggja fimmta sætið mikilvæga.

Moussa Diaby, Youssef En-Nesyri, Fabinho, Houssem Aouar og Danilo Pereira eru meðal leikmanna Al-Ittihad en þeir gætu lent í vandræðum gegn Nacho Fernández, Nahitan Nández, Otávio, Julian Quinones og félögum í Al-Qadsiah sem eru 19 stigum ofar á stöðutöflunni.

Að lokum eru Damac og Al-Riyadh í harðri baráttu um síðasta lausa sætið í deildinni. Damac heimsækir Ronaldo og félaga í ógnarsterku liði Al-Nassr og nægir jafntefli til að bjarga sér frá falli.

Al-Riyadh á talsvert auðveldari leik gegn föllnu liði Al-Okhdood og þarf sigur þar til að eiga möguleika á að bjarga sér. Sigur gegn Al-Okhdood og hagstæð úrslit í heimaleik Al-Nassr gegn Damac myndu bjarga Al-Riyadh frá falli á síðustu stundu.

Leikir dagsins:
18:00 Al-Nassr - Damac
18:00 Al-Fayha - Al-Hilal
18:00 Al-Ittihad - Al-Qadsiah
18:00 Al-Riyadh - Al-Okhdood
18:00 Al-Hazem - Al-Taawon
18:00 Al-Kholood - Al-Fateh
18:00 Neom SC - Al-Ettifaq
Slapp
banner