Fimmta umferð Bestu deildar kvenna fór fram í gær. Breiðablik vann sterkan útisigur á Þór/KA og situr nú eitt á toppnum.
Víðir Sigurðsson gerði umferðina upp í færslu á Facebook síðu sinni og benti þar á að þetta sé í sjöunda sinn á þessari öld sem Breiðablik byrjar mótið á fimm sigrum og í tólfta sinn frá upphafi.
Víðir Sigurðsson gerði umferðina upp í færslu á Facebook síðu sinni og benti þar á að þetta sé í sjöunda sinn á þessari öld sem Breiðablik byrjar mótið á fimm sigrum og í tólfta sinn frá upphafi.
Þá er þetta versta byrjun Akureyrarliðsins í aldarfjórðung. Árið 2001 tapaði liðið fyrstu sjö leikjum sínum. Frá þeim tíma hefur það ekki gerst, þar til nú, að Þór/KA nái ekki að vinna neinn af fyrstu fimm leikjunum, segir í færslu Víðis.
FH vann ÍBV í Kaplakrika í gær 3-0, liðið situr í þriðja sæti. Víðir bendir á að níu leikmenn hafa skorað mörkin níu sem FH hefur skorað í fyrstu fimm umferðunum.
Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir er nokkuð óvænt jafn markahæst í deildinni með fjögur mörk eftir fimm umferðir.
Fyrir þetta tímabil skoraði hún þrjú mörk í 64 leikjum í Bestu deildinni en hefur nú skorað fjögur mörk í fyrstu fimm umferðunum bendir Víðir jafnframt á.
Besta kvenna
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Breiðablik | 7 | 6 | 0 | 1 | 21 - 8 | +13 | 18 |
| 2. FH | 7 | 5 | 1 | 1 | 18 - 9 | +9 | 16 |
| 3. ÍBV | 7 | 4 | 1 | 2 | 13 - 13 | 0 | 13 |
| 4. Þróttur R. | 7 | 4 | 0 | 3 | 11 - 7 | +4 | 12 |
| 5. Stjarnan | 7 | 3 | 2 | 2 | 10 - 7 | +3 | 11 |
| 6. Víkingur R. | 7 | 3 | 0 | 4 | 14 - 17 | -3 | 9 |
| 7. Grindavík/Njarðvík | 7 | 2 | 2 | 3 | 8 - 13 | -5 | 8 |
| 8. Valur | 7 | 2 | 1 | 4 | 7 - 10 | -3 | 7 |
| 9. Fram | 7 | 1 | 1 | 5 | 8 - 18 | -10 | 4 |
| 10. Þór/KA | 7 | 0 | 2 | 5 | 11 - 19 | -8 | 2 |



