Leikmenn eru orðaðir við Liverpool og Manchester United í slúðurpakka dagsins. Real Madrid horfir löngunaraugum til Rodri og Bayern München hefur óvæntan áhuga á leikmanni Manchester City.
Liverpool hefur formlega lýst yfir áhuga á kantmanninum Bazoumana Toure (20) hjá Hoffenheim en mun fá samkeppni frá Manchester United, Aston Villa og Newcastle. (TeamTalk)
Manchester United fylgist með norska vinstri bakverðinum Julian Ryerson (28) hjá Borussia Dortmund en hann gæti verið fenginn í stað Noussair Mazraoui. (Sky Sports Þýskalandi)
Manchester United gæti nýtt sér njósnamálið með því að gera tilboð í norður-írska miðjumanninn Shea Charles (22). (Mirror)
Liverpool gæti reynt við norska kantmanninn Antonio Nusa (21) ef það reynist of erfitt að fá Yan Diomande frá RB Leipzig. (Football Insider)
Real Madrid telur að brotthvarf Pep Guardiola frá Manchester City opni dyrnar fyrir félagið að krækja í spænska miðjuumanninn Rodri (29). (Marca)
Bayern München íhugar óvænt að reyna að fá enska varnarmanninn John Stones (31) sem mun yfirgefa Manchester City eftir tímabilið. (Mail)
Atletico Madrid hefur áhuga á að fá portúgalska miðjumanninn Bernardo Silva (31) frá Manchester City og spænska varnarmanninn Marc Cucurella (27) frá Chelsea. (Sky Sports)
Bandaríska MLS-félagið Inter Miami er nálægt því að krækja í brasilíska miðjumanninn Casemiro (34) sem mun yfirgefa Manchester United eftir tímabilið. (Athletic)
Brasilíski markvörðurinn Alisson (33) vill ganga í raðir Juventus í sumar, jafnvel þó ítalska félaginu mistakist að komast í Meistaradeildina. (Gazzetta )
Barcelona hefur náð samkomulagi við Marcus Rashford (38) um kaup og kjör en hefur ekki samið við Manchester United um kaupverðið. (Sport)
Fenerbahce í Tyrklandi hefur óvænt blandað sér í baráttu um að fá egypska framherjann Mohamed Salah (33) frá Liverpool í sumar. (Caught Offside)
Ólíklegt er að Borussia Dortmund muni fá Jadon Sancho (26) sem er á láni hjá Aston Villa frá Manchester United aftur til félagsins. (Bild)
Chelsea hefur áhuga á að fá miðvörðinn Edmond Tapsoba (27) frá Bayer Leverkusen en þessi landsliðsmaður Búrkína Fasó hefur áður unnið undir stjórn Xabi Alonso. (TeamTalk)


