Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar ræddi við Fótbolta.net eftir 3-2 tap gegn Víkingi R. í Bestu deildinni í kvöld.
Hann ræddi meðal annars um kantmanninn Alpha Conteh sem hefur verið sterklega orðaður við Keflavík.
„Það eru allar líkur á að hann endi þar og fari á láni. Við reiknum með að það klárist á næstu dögum," sagði Jökull meðal annars.
Conteh er 25 ára gamall og kom við sögu í sjö leikjum í Bestu deildinni í fyrra eftir að hafa verið fenginn til Stjörnunnar á seinni hluta tímabils.
23.04.2026 12:00
Keflavík að fá leikmann frá Stjörnunni





