Haraldur Ágúst Brynjarsson, 18 ára, er efnilegur bakvörður sem kemur á láni til Njarðvíkinga frá Víkingi. Haraldur Ágúst þykir bráðefnilegur og er með tíu leiki að baki fyrir unglingalandslið Íslands, þar af fimm fyrir U18 liðið.
Hann kemur til með að spila ágætis hlutverk fyrir Njarðvík í sumar og verður spennandi að sjá hvernig þessi efnilegi bakvörður tekur það að sér. Í dag sýnir Haraldur Ágúst, sem spilaði einn leik með Víkingi í Bestu deildinni í fyrra, á sér hina hliðina.
Hann kemur til með að spila ágætis hlutverk fyrir Njarðvík í sumar og verður spennandi að sjá hvernig þessi efnilegi bakvörður tekur það að sér. Í dag sýnir Haraldur Ágúst, sem spilaði einn leik með Víkingi í Bestu deildinni í fyrra, á sér hina hliðina.
Fullt nafn: (Svar) Haraldur Ágúst Brynjarsson
Gælunafn: Halli svo er víkings spilararnir duglegir að kalla mig lobster so á Danna H og Helga Guðjóns
Aldur: 18 ára
Hjúskaparstaða: Lausu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Það var á móti HK í bose mótinu 2024. Ég kom á 75 mín og skoraði á 80 mín
Uppáhalds drykkur: ískaldur epla bon aqua
Uppáhalds matsölustaður: Saffran, Réttur hjólarans er svona holy sjid dæmi
Uppáhalds tölvuleikur: Fifa
Áttu hlutabréf eða rafmynt: nei
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: allir þessir Draumar eru the sjidd , get horft a það endalaust!
Uppáhalds tónlistarmaður: Prime Luigi verður líklegast aldrei toppaður, mæli með laginu Ástarleit alvöru banger!
Uppáhalds hlaðvarp: FM95blö
Uppáhalds samfélagsmiðill: insta en ef lumman er samfélagsmiðill þá er það alltaf það!
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: .net eða prodirectsoccer
Fyndnasti Íslendingurinn: Gilzarinn en get líka hlegið endalaust af Hrafn Guðmunds og ég meina endalaust!
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: pabbi: Gangi þér vel á æfingu vinur!
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Breiðablik.
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Aron sig og Matias Siltanen spilaði móti honum í u17 leik hann er alvöru leikmaður!
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Er búinn að vera gríðarlega heppinn með þjálfara og margir hafa hjálpað mér á öllum sviðum leiksins en Aron Baldvin Þórðarsson er búinn að hafa mjög mikil áhrif á mig sem leikmann og hann hefur líka þjálfað mig lengst
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Þorri Stefán í yngri flokkum gerir mig helvíti pirraðan
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Neymar.
Sætasti sigurinn: Gothia Cup final 2022 gegn Stjörnunni var ekkert eðlilega sætur
Mestu vonbrigðin: Ekki en búinn að vera eitthver svakaleg vonbrigði
Uppáhalds lið í enska: Man utd
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Danni Hafsteins my fav player
Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Þorri Ingólfs er alvöru efni
Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: G sig er rugl huggulegur
Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Erna Þury Fjölvarsdóttir
Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: SUIIIII
Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Nýja reglan með breytingarnar er shokking
Uppáhalds staður á Íslandi: Siglufjörður bæði uppáhalds og fallegasti
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: neee alrei verið með neitt þannig
Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: final 4 í Íslensku körfunni er ekkert eðlilega skemmtilegt og svo að horfa á píluna með Pabba og bræðrum mínum ekkert eðlilega gaman
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Núna í Nike tiempo en styttist að ég fari í Phantom
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Klárlega stærðfræði
Vandræðalegasta augnablik: Þegar ég kom inná í Bestu í fyrra og lýsarinn sagði vitlaust nafn að koma inná bæði í TV og a leiknum það var ekki gott
Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Pabba (Eið Aron), Afa (Gumma magg) og ekki leikmann en Davíð Smára það væri rugl gott matarboð
Bestur/best í klefanum og af hverju: Óskar Bogga skemmtilegasti gaur sem ég hef kynnst
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Segja hvaða seríu og af hverju (dæmi: Survivor, Love Island, Idol, Got Talent) Myndi senda Stefán Gísla í Survivor væri bara held ég að gera honum greiða hann hefði klárlega bara gott af því
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: hef aldrei tapað Rey Cup
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Eiður Aron var smeykur við hann fyrst en svo er hann bara mjög hlýr og góður gaur
Hverju laugstu síðast: Að eg var lagður af stað til Sjonna félaga míns en var alls ekki lagður af stað hehe
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: hlaupa án bolta klárlega
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: myndi spyrja Neymar um blue print af þessum skill hæfileikum
Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Sælirrr, Get ekki beðið að sjá ykkur í sumar og Áfram Njarðvík


