Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Unglingalandsliðskona skrifar undir hjá Blikum
Kvenaboltinn
Mynd: Breiðablik
Karolína Ósk Guðmundsdóttir er búin að skrifa undir sinn fyrsta samning við meistaraflokk Breiðabliks en hún er aðeins 16 ára gömul.

Hún hefur verið mikið í kringum meistaraflokk í vetur auk þess að leika með Augnabliki í undirbúningsmótum fyrir sumarið.

Á síðasta tímabili varð hún Íslands- og bikarmeistari með 2. flokki Blika auk þess að leikja þrjá landsleiki fyrir U17 liðið.

Breiðablik er ríkjandi Íslandsmeistari í kvennaflokki og með afar lofsamað uppeldisstarf sem hefur búið til mikið af öflugum landsliðskonum í gegnum tíðina.


Slapp
banner
banner
banner